Við erum sérfræðingar í loftræstingu og loftgæðum
Loftvist sérhæfir sig í lausnum sem bæta loftgæði og skapa ferskara og heilnæmara inniloft fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Við bjóðum allt frá einföldum loftskiptalausnum yfir í heildstæð loftræstikerfi, ásamt sérhæfðum lausnum gegn raka og rakauppsogi.
Reynsla, sérþekking og vandaður búnaður
Hjá Loftvist sameinum við reynslu og sérþekkingu á loftræstingu og loftgæðum við vandaðan búnað frá traustum framleiðendum. Við leggjum áherslu á að finna réttu lausnina fyrir hvert rými, faglega uppsetningu og góða eftirfylgni - með ferskara og betra inniloft að leiðarljósi.

Saga Loftvist
Loftvist varð til út frá persónulegri reynslu eins eigenda fyrirtækisins meðan hann bjó á meginlandi Evrópu. Léleg loftskipti, þungt inniloft og raki höfðu mikil áhrif á líðan og daglegt líf.
Eftir að hafa prófað ýmsar lausnir kynntist hann loftræstitækni sem gjörbreytti aðstæðunum. Með stöðugum loftskiptum varð loftið ferskara, rakastigið betra og inniloftið gjörbreyttist. Munurinn á líðan var það mikill að áhuginn á loftgæðum varð að ástríðu.
Þessi reynsla varð grunnurinn að Loftvist.
Í dag hjálpum við öðrum að skapa ferskara og heilnæmara inniloft með vönduðum loftræstilausnum, faglegri ráðgjöf og réttri lausn fyrir hvert rými.
Markmiðið er einfalt: að fleiri finni muninn sem gott loft getur gert.

Hafðu samband við okkur
Samstarfsaðilar okkar
Hafðu samband við okkur í dag
Við hjálpum þér að finna réttu lausnina og bestu tilboðin á verði sem hentar þér.