Vefverslun
Loftgæði og heilsa

Heilbrigðara umhverfi, betri lífsgæði

Góð loftgæði innandyra eru ein af grunnforsendum heilbrigðs og þægilegs umhverfis. Ferskt loft og skilvirk loftskipti stuðla að betri líðan, auknum þægindum og heilnæmara umhverfi, hvort sem er heima eða á vinnustað.

Loftræstikerfi

Betri loftgæði, betri svefn

Rannsóknir hafa sýnt að góð loftræsting og ferskt inniloft geti stuðlað að betri svefngæðum og aukinni vellíðan.

Loftgæði hafa áhrif á einbeitingu

Ófullnægjandi loftskipti geta valdið uppsöfnun CO₂ og annarra mengunarefna sem geta haft áhrif á einbeitingu og afköst.

Vont loft er ekki alltaf sýnilegt

Ryk, mengunarefni og ófullnægjandi loftskipti geta haft áhrif á inniloftið án þess að við tökum eftir því.

Börn eru sérstaklega viðkvæm

Börn eru viðkvæm fyrir loftmengun innandyra, enda eru öndunarfæri þeirra enn að þroskast.

Léleg loftræsting getur valdið uppsöfnun koltvísýrings (CO₂), svifryks, raka og annarra mengunarefna í innilofti. Slíkar aðstæður geta haft áhrif á einbeitingu, svefngæði og öndunarfæri. Með góðri loftræstingu og réttum lausnum er hægt að bæta loftgæði og skapa heilbrigðara umhverfi til lengri tíma.

Loftgæði og heilsa

Hvernig hafa loftgæði áhrif á heilsuna?

Loftið sem við öndum að okkur hefur bein áhrif á heilsu okkar og vellíðan. Léleg loftskipti geta valdið uppsöfnun koltvísýrings (CO₂), ryks, raka og annarra mengunarefna í innilofti. Slíkar aðstæður geta stuðlað að höfuðverk, þreytu, skertri einbeitingu og óþægindum í öndunarfærum. Með góðri loftræstingu og reglulegum loftskiptum er hægt að draga úr mengunarefnum og skapa heilnæmara umhverfi.

Léleg loftgæði geta haft áhrif á svefn, einbeitingu, öndunarfæri og almenna vellíðan.

90%

Við eyðum að meðaltali um 90% af tíma okkar innandyra.

Áhrif

Áhrif loftgæða á heilsu og vellíðan

Höfuðverkur og þreyta

Getur valdið þreytu og höfuðverk.

Svefngæði

Getur haft áhrif á svefn og hvíld

Ofnæmiseinkenni

Getur valdið nefstíflu, hósta, hnerrum, ertingu í hálsi og ofnæmiseinkennum.

Öndunarerfiðleikum og astma

Getur aukið einkenni hjá fólki með viðkvæm öndunarfæri.

Ertingu í augum og húð

Getur valdið kláða, roða og húðvandamálum.

Skert einbeiting

Getur haft áhrif á einbeitingu og afköst.

Hormónajafnvægi

Getur haft áhrif á eðlilega hormónastarfsemi

Andleg heilsa

Getur haft áhrif á vellíðan, kvíða og þunglyndi.

Rannsóknir

Hvað segja rannsóknirnar?

1981 - 2020

Háskóli Íslands

Allt að helmingur íslenskra heimila hefur glímt við rakavandamál samkvæmt rannsóknum Björns Marteinssonar við Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar undirstrika hversu útbreiddur rakavandi er í íslensku húsnæði og hversu mikilvægt er að bregðast við honum áður en hann leiðir til skemmda, myglu og skertra loftgæða.

2009

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin

Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) eru íbúar rakaskemmdra eða myglaðra bygginga allt að 75% líklegri til að glíma við öndunarfæraeinkenni og astma. Niðurstöðurnar sýna skýr tengsl milli raka, myglu og heilsufarslegra áhrifa og undirstrika mikilvægi heilbrigðs innilofts fyrir heilsu.

2016

Technical University of Denmark

Rannsóknin sýnir að betri loftræsting og lægra magn koltvísýrings innandyra getur bætt svefngæði, einbeitingu og afköst daginn eftir. Niðurstöðurnar benda til þess að loftgæði hafi bein áhrif á hvernig við sofum, hugsum og störfum. Heilbrigt inniloft er því grunnforsenda góðrar heilsu, vellíðanar og daglegrar frammistöðu.

Hafa samband

Hafðu samband við okkur í dag

Við hjálpum þér að finna réttu lausnina og bestu tilboðin á verði sem hentar þér.

Hafa samband

Sendu okkur línu og við höfum samband sem fyrst.